26.12.2007 | 03:27
Gleðileg jól, og gæfuríkt komandi ár
Hæ hæ elskurnar
Vona að jólin séu ykkur gleðileg og að nýja árið verði ykkur farsælt.
Við fórum til Florida fyrir jólin þar sem megin tilgangur ferðarinnar var að hitta Helgu Aspelund og hennar fjölskyldu. Við vorum með þeim í fimm frábæra daga. Einn dag fórum við til Disney þar sem við hittum allar aðal Disney heturnar og það var ótrúlega gaman :-)
Við komum til baka á Þorláksmessu. Það var frekar hvasst þannig að flugmaðurinn átti í miklum erfiðleikum með að lenda. Konurnar fyrir aftan okkur Sóleyju grétu og báðust fyrir! Það var mikil mildi að Sóley og Kristófer sváfu á meðan þessu stóð! Þetta var nú ekki verra en innanlandsflug á Íslandi í roki ;-)
En aðfangadagur var mjög notarlegur hér á Sidney place þar sem við vísitölufjölskyldan fögnuðum fæðingu frelsarans. Við viljum þakka ykkur kærlega fyrir höfðinglegar jólagjafir sem allar hittu í mark.
Í dag jóladag vorum við svo í boði hjá Theresu og Jess ásamt 30 - 40 öðrum. Það var mjög gaman og allir þreyttir þegar heim var komið. Á morgun höldum við svo í árlegt jólaboð hjá Jan og Mark. Þetta er fjórða árið í röð sem við förum til Connectciut í sumarhúsið þeirra á annan í jólum....og það er alltaf jafn gaman.
Plútó er í miklu uppáhaldi á bænum þar sem börnin lifa við það óréttlæti að fá ekki hund sem gæludýr. Því koma hér tvær af honum teknar af neti disney. Það er alveg magnað hvað það eru lélegir ljósmyndarar sem þarna vinna. Þeir hitta ekki einu sinni á að hafa sér til hannaðan bakgrunninn á bak við fyrirsæturnar. Hér koma tvær Disney Pluto myndir kv Ásta Jóns
p.s. skrifa fljótlega aftur :-)
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 03:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.10.2007 | 03:13
Loksins blogað á ný
Hæ hæ elskurnar okkar
Þá er loksins komið að nýrri blog færslu. Það eru liðnir tæpir 2 mánuðir frá því að við komum heim frá Íslandi. Dvölin á Íslandi var hin ánægjulegasta og viljum við þakka ykkur sem við hittum fyrir ánægjulega samveru.
Sem fyrr læt ég myndirnar tala
KV Ásta Jóns
Sóley Hrönn með púðlu hundinn sinn Alicia sem hún gerði á 5 ára afmælisdaginn sinn
Við sama tækifæri bjó Kristófer Daði til sleðahundinn Braga
Alex kom á Sleep over það var ekkert smá skemmtilegt!
Dóra og Agnes komu í heimsókn frá Brussel. Hér erum við með þeim,
Helgu Leifs og hennar börnum á Brooklyn Bridge
Við erum búin að finna hesthús hér í nágrenninu þar sem við getum farið á hesbak.
Nýjasta áhugamálið er "bug hunting"
Robbi kom í heimsókn til okkar...hann var ótrúlega duglegur að leika við Sóleyju og Kristófer
"Ég elska að leika mér í grasinu!"
Við komum við í drummers grove
Kristófer klifurköttur
Hér erum við í heimsókn hjá Jóni Ólafs og fjölskyldu
Um síðustu helgi fórum við í heimsókn til Alison og William
Veðrið er búið að vera ótrúlega gott upp á síðkastið hér í New York.
Þessi mynd er tekin á 30 afmælisdag minnar kæru systur Önnu þann 6. okt.
En það getur nú líka verið gott veður á Íslandi. Sendi hérna nokkrar myndir sem teknar voru í sumar til að minna ykkur á góða veðrið sem fengum sl. sumar
Uppi á Miðfellsfjalli
Í Álfaskeiði
Í fyrradag fórum við Ellen með börnin okkar í sveitaferð í tilefni Kólumbusar frídagsins
Sóley Hrönn fann risa grasker
Krökkunum fannst sum eplin svolítið súr
Við tíndum nokkur blóm
Ein falleg prinsessu mynd í lokin. Þessi er tekin af Sóleyju Hrönn og Ástu Sóleyju á Akranesi í sumar.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 11:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
1.7.2007 | 11:39
Enn og aftur í bíó
Við skelltum okkur í bíó í gærkvöldi. Við sáum frábæra mynd sem heitir Ones. Mæli eindreigið með henni. Mjög óvenjulegar tökur skemmtileg saga og æðisleg tónlist. Hér getið þið horft á trailer myndarinnar http://us.video.aol.com/player/launcher?ar=us_en_video_748x541_full&mode=1&pmmsid=1893387
Við fórum á aðra mynd um daginn sem er ekki síður góð. Sú mynd heitir The Waitress http://movies.aol.com/movie/waitress/23381/main
Ef þið hafið séð einhverja góða mynd nýlega endilega segið mér frá!
kv Ásta Jóns
26.6.2007 | 20:34
Komum til Íslands 14. júlí
26.6.2007 | 20:31
Götulistamenn
Það væri nú gaman ef að gott skipulagi kæmist á götulistamenn á Íslandi. Hér í South street seeport er mjög flott kerfi á þessu.
Her erum við að dáðst að jóga listamanni sem virtist ekki vera með nein bein í líkamanum.
Hann endaði sýninguna með því að troða sér inn í þennan glerkassa sem er fyrir framan borðið. Kristófer ætlar að kaupa sér svona kassa!
Á myndinni má sjá Sæunni Pétursdóttur, Þórunni Káradóttur, Seinunni Guðmundsdóttur, Pétur, Auði, Brynju. Sóleyju, Kristófer og hendurnar á Halla.
Sóley og Brynja
Vinir og fjölskylda | Breytt 28.6.2007 kl. 13:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.6.2007 | 20:24
Sveitaferð 2
Ég og mín börn héldum áfram til Jean þar sem hún á hús á Groton long point sem er næsti bær við Mystic.
Kristófer, Lucy og Sóley- Steinunn og Clear í bakgrunni.
Jean og Henry mætt til leiks
Steinunn á ég þessi Sólgleraugu?
Þau passa alveg á mig!
Siglingakeppni séð út úr stofuglugganum
Í Mystic að bíða eftir fellibrúnni
Kristófer að passa Henry.....
Svona endaði það!
Krakkarnir sem eru voða hrifnir af Pleymo duttu í lukkupottinn þegar þau hittu þennan.
Svo var öllum skellt í bað....sennilega svipuð stemming og á Brennu í gamla daga.
Ströndin hennar Jean
26.6.2007 | 20:11
Sveitaferð 1
Ég Ellen og okkar börn fórum um daginn í ferð til Jan og Mark í Conneticut þar sem hún á sumarhús í nágrenni Madison.
Leitað af kröbbum
Kristófer með sinn feng
Mark átti afmæli meðan á dvöl okkar stóð og er hann nú mjög cool að mati Kristófers. Þann titil fékk hann eftir flugeldasýninguna sem hann sýndi okkur eftir kvöldmatinn.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 20:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.6.2007 | 20:05
Feðradagurinn
Krakkarnir föndruðu þessa feðradagsgjöf með minni hjálp. Myndina prentuðum við út fyrir skriftofuna hans Halla og settum í fínan ramma!
26.6.2007 | 20:03
Baðlitir
Sóley fékk í fyrra frábæra baðliti í afmælisgjöf...verð að kaupa meira þar sem birðirnar kláruðust um daginn.
26.6.2007 | 19:59
Ellen 40 ára
Hér er hinn margumtalaði kvennaklúbbur minn að halda upp á afmæli Ellenar!
Asta, Jan, Mary, Alison, Betcy og Jean
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 20:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
